FÖNDURBLOGG
Flísar þurfa ekki einungis að fara upp á vegg heldur er einnig hægt að nota þær sem glasamottur, bakka undir veitingar, segla á ísskáp (úr léttara efni t.d. tré) og margt fleira. Hægt er að nota hvaða myndir sem er, eitthvað fallegt af netinu eða úr eigin persónulega safni. Við ákváðum að nota myndir sem við fundum á Pinterest af dýrum í fötum og koma þær ekkert smá skemmtilega út! Til þess að búa til svona flísar þarf: - Flísar - Myndir (prentaðar í laserprentara) - Foto Transfer Potch - Mod Podge Ultra Gloss eða Dimensional Magic - Pensil - Tusku og vatn - Sandappír Aðferð: 1. Mála skal Photo Transfer efninu bæði á yfirborð flísarinnar og á myndina. Athugið að myndin speglast þannig passa skal að spegla myndina í tölvu áður en hún er prentuð út ef þú ert með texta. (Sjá myndband neðst) 2. Myndin er lögð á flísina og látið þorna. Gott er að nota hárblásara til þess að flíta fyrir ferlinu. 3. Þegar efnið er orðið alveg þurrt er tuska bleytt og pappírinn nuddaður af. Gott er að nota sandpappír, ef þess þarf, til þess að fjarlægja umfram pappír á hliðunum. 4. Nú hægt að nota tvær vörur, annars vegar Dimensional Magic eða lakklím. Dimensional magic er þykkara efni og er t.d. notað til þess að setja yfir myndir á hálsmenum. Af því kemur rosalega þykkt og fallegt lag af gljáa yfir myndina. Lakklímið er einnig hægt að nota, en við notuðum lakklím í spreyformi (á hundamyndina). Áferðin er þynnri en sami glans myndast á myndinni. Mynd: http://www.darkroomanddearly.com/blog/rkroomanddearly.com Mynd: https://www.elle.com Hér má sjá hvernig Photo Transfer er notað:
0 Comments
Þið mynduð ekki trúa því hvað það er auðvelt og fljótlegt að búa til fallega steypu skrautmuni frá grunni með Beton steypunni frá okkur. Hægt er að búa til stafi, kertastjaka í öllum stærðum og gerðum, útstillingarhluti, svo eitthvað sé nefnt. Það sem þú þarft: 1. Pappamassa staf eða box 2. Beton steypu og vatn 3. Matarolíu 4. Kertaístað ef þið ætlið að búa til kertastjaka Athugið að mikilvægt er að fylgja leiðbeiningunum vel og blöndunarhlutföllunum svo að þetta heppnist vel. Númer eitt, tvö og tíu er að nota Matarolíu! Matarolían kemur í veg fyrir að steypan festi sig við pappamassann og hún mun gera það ef olían er ekki notuð. Gott er að pensla matarolíunni vel inní formið með venjulegum pensli.
Annars er þetta ferli mjög einfalt, opnið formið, blandið steypunni saman við rétt hlutfall af vatni. Penslið matarolíunni í formið og hellið steypunni í. Bíðið í 3 klst og Voilá! - Við mælum með að hafa "út" eða framhliðina það sem legst í botninn, t.d. fyrir stafina svo að framhliðin sé alveg slétt - Umhverfisvitund almennings hefur aukist svo um munar á síðustu misserum og er fólk byrjað að í mun meiri mæli að sniðganga vörur sem eru óhollar fyrir umhverfið. Eitt stærsta vandamálið í dag eru brúsar utan um allskyns sápur, t.a.m. sjampó, næringu, handsápur o.fl. Þessar vörur eru þær sem við notum daglega, allan ársins hring og gleymist oft hvað þeim fylgir mikil sóun og plastnotkun. Ein leið til að minnka notkun á þessum vörum er að nota sápustykki. Sápustykki innihalda einnig yfirleitt minna af aukaefnum sem eru bæði skaðleg umhverfinu og okkur sjálfum. Afhverju ekki þá að búa til sína eigin sápu! Við erum með sápumassa frá Rico Design sem er 100% vegan, prófuð af húðsjúkdómafræðingum (dermatologically tested), skin neutral og án allra ilmefna. Bæði erum við með hvítan sápumassa og glæran og því auðvelt að leika sér með og búa til allskyns útfærslur. Aðferðin til að búa til sínar eigin sápur er ofur einföld og þarf ekki mikið til að búa til fallegar og vel lyktandi sápur. Hér að neðan er myndband sem sínir í grunnatriðum hvernig best er að vinna með sáumassann og nokkrar hugmyndir um hvað er hægt að gera. Ef ætlunin er ekki að nota allan sápumassann er best að skera hann niður í þá stærð sem óskað er eftir og geyma rest. Til að bræða sápumassann er hægt að nota tvær aðferðir:
Auðveldara gerist það ekki! **Athugið að þessi vara er ekki ætluð börnum nema með eftirliti fullorðna** ![]() Sniðugt er að láta sápurnar þorna utan um snæri eða band þannig hún geti hangið í sturtuklefanum og minni líkur að hún renni úr höndunum í sturtu. Pappastafir með stöfum brúðhjónanna er ódýr og einföld leið til að gera fallega skreytingu fyrir brúðkaup. Hægt er að gera þetta í alls kyns útfærslum og litum. Myndin hér að ofan er frá vinum okkar hjá CC Hobby en við erum með pappastafi sem eru gerðarlegri og standa mjög vel einir og sér.
Stafurinn hér að ofan er tekinn einu skrefi lengra og skreyttur með tilbúnum blómum. Stafurinn er grunnaður með Champagne akríl litnum frá Marhta Stewart. Hægt er að mála með pensli eða dúmpa á stafinn með svampi, en þá kemur aðeins grófari áferð á litinn. Til þess að festa blómin á er í raun hægt að nota hvaða föndurlím sem er eða límbyssu.
Leðurpappír er algjör dásemd þegar kemur að því að gera huggulegt hjá sér, skreyta fyrir boð og veislur, til að mynda fyrir skírn eða brúðkaup. Hann er vatnsheldur og hægt að skola úr honum eða þvo í þvottavél þannig að auðvelt er að geyma plöntur, ávexti, brauð, garn eða hvað annað sem ykkur dettur í hug. Hjá okkur er hægt að kaupa tilbúnar leðurpappír poka sem hægt er að mála á, stensla og skrifa svo eitthvað sé nefnt eins og á myndinni hér að ofan. Hér að neðan ætlum við svo að sýna ykkur hvernig hægt er að skrifa falleg orð á pokana á einfaldan hátt. Það sem þarf til að skrifa á pokann er að sjálfsögðu pokinn sjálfur, blýant, textíl penna og plötu. Einnig er sniðugt að nota kalkipappír til að fá fullkomna skrift á pokann. En ekki hafa áhyggjur, ef þú gerir mistök með blýantinum er ekkert mál að stroka skriftina út með venjulegu strokleðri.
Einfaldara gerist það ekki :)
Það sem þarf til er: 1, Frauðkúlur í mismunandi stærðum, mælt er með 2cm, 4cm og 6cm kúlum en að sjálfsögðu er það valfrjálst eftir því hvað skjaldbökurnar eiga að vera stórar. 2. Lítil augu, en einfaldast er að nota öryggisaugu og sleppa þá að festa aftan á pinnann. Augunum er einfaldlega stundið inn í hausinn á skjaldbökunni. Einnig er hægt að nota perlur, flöt augu og tölur en þá mælum við með að nota lím. 3. Perluleir í lit að eigin vali. 4. Silkileir í lit að eigin vali 5. Skæri og hníf (til að skera frauðkúlurnar í sundur. Heimildir: www.cchobby.com
Plöntuhengi gera heimilið fallegra og eru til endalausar útgáfur af allskyns plöntuhengjum, og sú vinsælasta hefur ávallt verið Macrame plöntuhengi enda gullfalleg. Vinir okkar frá Creative Company hafa fundið nýja leið til að búa til svona falleg plöntuhengi og koma þau einstaklega vel út. Plöntuhengin eru gerð með leðurpappír böndum. Leðurpappír , e. Leather paper, er unninn úr sellúlósa og latexi sem gerir hann einstaklega slitsterkan enda þolir hann strauningu og 4o° þvott! Vert er þó að taka fram að við þvott verður áferðin "veðraðari" (búast má við minnkun um 5%) og passa þarf að strauja bakhlið pappírsins. Hér að neðan ætlum við að sýna skref fyrir skref hvernig á að búa til svona plöntuhengi en í það þarf Faux leather Weaving Strips, eins og er hér að ofan, hnoðnagla eða rivets, tré eða plast hring og krukku eða ílát sem á að móta hengið í kringum. Hægt er að fá allt sem til þarf hjá okkur í Föndru ásamt tækjum og tólum.
|
FÖNDRA
HÉRNA INNÁ MUNUM VIÐ SETJA INN ALLSKYNS HUGMYNDIR, DIY, MYNDIR, MYNDBÖND OG ALLT ANNAÐ SEM TENGIST FÖNDRI! flokkar
All
Archives |