FÖNDURBLOGG
Leðurpappír er algjör dásemd þegar kemur að því að gera huggulegt hjá sér, skreyta fyrir boð og veislur, til að mynda fyrir skírn eða brúðkaup. Hann er vatnsheldur og hægt að skola úr honum eða þvo í þvottavél þannig að auðvelt er að geyma plöntur, ávexti, brauð, garn eða hvað annað sem ykkur dettur í hug. Hjá okkur er hægt að kaupa tilbúnar leðurpappír poka sem hægt er að mála á, stensla og skrifa svo eitthvað sé nefnt eins og á myndinni hér að ofan. Hér að neðan ætlum við svo að sýna ykkur hvernig hægt er að skrifa falleg orð á pokana á einfaldan hátt. Það sem þarf til að skrifa á pokann er að sjálfsögðu pokinn sjálfur, blýant, textíl penna og plötu. Einnig er sniðugt að nota kalkipappír til að fá fullkomna skrift á pokann. En ekki hafa áhyggjur, ef þú gerir mistök með blýantinum er ekkert mál að stroka skriftina út með venjulegu strokleðri.
Einfaldara gerist það ekki :)
0 Comments
Plöntuhengi gera heimilið fallegra og eru til endalausar útgáfur af allskyns plöntuhengjum, og sú vinsælasta hefur ávallt verið Macrame plöntuhengi enda gullfalleg. Vinir okkar frá Creative Company hafa fundið nýja leið til að búa til svona falleg plöntuhengi og koma þau einstaklega vel út. Plöntuhengin eru gerð með leðurpappír böndum. Leðurpappír , e. Leather paper, er unninn úr sellúlósa og latexi sem gerir hann einstaklega slitsterkan enda þolir hann strauningu og 4o° þvott! Vert er þó að taka fram að við þvott verður áferðin "veðraðari" (búast má við minnkun um 5%) og passa þarf að strauja bakhlið pappírsins. Hér að neðan ætlum við að sýna skref fyrir skref hvernig á að búa til svona plöntuhengi en í það þarf Faux leather Weaving Strips, eins og er hér að ofan, hnoðnagla eða rivets, tré eða plast hring og krukku eða ílát sem á að móta hengið í kringum. Hægt er að fá allt sem til þarf hjá okkur í Föndru ásamt tækjum og tólum.
|
FÖNDRA
HÉRNA INNÁ MUNUM VIÐ SETJA INN ALLSKYNS HUGMYNDIR, DIY, MYNDIR, MYNDBÖND OG ALLT ANNAÐ SEM TENGIST FÖNDRI! flokkar
All
Archives |