FÖNDURBLOGG
Leðurpappír er algjör dásemd þegar kemur að því að gera huggulegt hjá sér, skreyta fyrir boð og veislur, til að mynda fyrir skírn eða brúðkaup. Hann er vatnsheldur og hægt að skola úr honum eða þvo í þvottavél þannig að auðvelt er að geyma plöntur, ávexti, brauð, garn eða hvað annað sem ykkur dettur í hug. Hjá okkur er hægt að kaupa tilbúnar leðurpappír poka sem hægt er að mála á, stensla og skrifa svo eitthvað sé nefnt eins og á myndinni hér að ofan. Hér að neðan ætlum við svo að sýna ykkur hvernig hægt er að skrifa falleg orð á pokana á einfaldan hátt. Það sem þarf til að skrifa á pokann er að sjálfsögðu pokinn sjálfur, blýant, textíl penna og plötu. Einnig er sniðugt að nota kalkipappír til að fá fullkomna skrift á pokann. En ekki hafa áhyggjur, ef þú gerir mistök með blýantinum er ekkert mál að stroka skriftina út með venjulegu strokleðri.
Einfaldara gerist það ekki :)
0 Comments
Leave a Reply. |
FÖNDRA
HÉRNA INNÁ MUNUM VIÐ SETJA INN ALLSKYNS HUGMYNDIR, DIY, MYNDIR, MYNDBÖND OG ALLT ANNAÐ SEM TENGIST FÖNDRI! flokkar
All
Archives |